Landið er tekið að rísa úr endalausu janúarmyrkrinu og landinn er kominn upp á afturlappirnar. Þó flestir séu komnir heim frá sólarlöndum til Íslands þar sem hver lægðin rekur aðra þá þýðir ekkert að gefast upp. Það vita helstu stjörnur Íslands sem nýta hvert tækifæri til að hafa gaman, brosa fyrir myndavélina og skála.
Guðrún Veiga Guðmundsdóttir áhrifavaldur í Vestmannaeyjum klæddist bleikum kjól og röndóttri fjólublárri og hvítri peysu. Dóttir hennar grét yfir því að kjóllinn væri ekki til í hennar stærð. Stundum getur lífið verið svo ósanngjarnt!
Þingmaðurinn Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir tók sig til og bjó til hina fullkomnu bernaise-sósu.
Förðunarmeistarinn Agnes Björgvinsdóttir telur niður í 12. febrúar!
Thelma Guðmundsen er stödd í Póllandi og pósaði með sínum allra besta í slopp!
Lilja Gísladóttir förðunarmeistari og áhrifavaldur fór út á skemmta sér í blómatoppi.
Jóhanna Helga Jensdóttir er stolt af Sunnevu Eir Einarsdóttur, vinkonu sinni, sem kláraði meistaragráðu á dögunum. Hér eru þær svartklæddar og seiðandi í Hörpu.
Jakob Bjarnar Grétarsson blaðamaður og hljómsveitargæi skellti sér á djammið.
Bryndís Líndal flugfreyja og móðir Nadíu Sifjar Líndal, áhrifavalds, nýtur lífsins í Ástralíu.
Jökull Júlíusson, söngvari hljómsveitarinnar Kaleo, var mættur í sannkallað nammiland tónlistarmannsins í París.
Kraftlyftingakonan og þjálfarinn, Arnhildur Anna Árnadóttir, skellti sér á æfingu og lyfti þungum lóðum. Hún á von á sínu fyrsta barni með kærasta sínum.
Tónlistarkonan Bríet tjaldaði öllu til fyrir Idolið.
Crossfit-stjarnan Sara Sigmundsdóttir var sannarlega ánægð með hundinn Simba sem raðaði inn verðlaunum á hundasýningu.
Listakonan Kristín Avon Gunnarsdóttir hafði það notalegt í sveitinni á Hótel Geysi.
Leikkonan Birna Rún Eiríksdóttir og Ebenezer Þórarinn Einarsson gengu í hjónaband um helgina eftir 12 ára samband.
Elín Erna Stefánsdóttir, förðunarfræðingur og áhrifavaldur, klæddi sig í stígvél um helgina og skálaði.
Jón Jónsson tónlistarmaður birti mynd af sér með forsetahjónunum Guðna Th. Jóhannessyni og Elizu Reid.
Leikkonan Þórdís Björk Þorfinnsdóttir svífur enn um á bleiku skýi eftir frumsýningu söngleiksins Chicago.
Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens birti rándýra sjálfu úr Borgarleikhúsinu.
Hildur Sif Hauksdóttir fagnaði því að hafa búið í eitt ár í London.
Klámstjarnan Edda Lovísa Björgvinsdóttir klæðir sig eftir veðri.
Fegurðardrottningin Hulda Vigdísardóttir og Birgir Örn Sigurjónsson eignuðust sitt fyrsta barn í síðustu viku.