Leikkonan Jennifer Lawrence átti rauða dregilinn í Hollywood um helgina þegar hún mætti í bert á milli dressi á verðlaunahátíð ásamt öðrum í þotuliði draumaborgarinnar.
Þrátt fyrir að bert á milli hafi verið í tísku síðustu misserin hafa stjörnurnar ekki endilega verið að mæta svoleiðis á glerfína viðburði. Pilsið og toppurinn sem Lawrence klæddist er þó afar fágað enda koma fötin úr smiðju Söruh Burton hjá Alexander McQueen.
Bróderuð blóm eru á fötunum en það er eitthvað sem hefur verið vinsælt upp á síðkastið og voru fleiri leikkonur í slíkum fatnaði þetta sama kvöld. Leikkonan Margot Robbie var til að mynda í fallegum svörtum kjól með bróderuðum blómum og Helen Mirren var í glæsilegu svörtu pilsi, einnig með bróderuðum blómum.