Gifti sig í strigaskóm

Serena Williams þekkir sína strigaskó.
Serena Williams þekkir sína strigaskó. mbl.is/AFP

Það er vandasamt verk að velja réttu skóna við brúðarkjólinn enda verða þeir ekki bara að vera flottir heldur líka þægilegir. Tennisstjarnan Serena Williams tók enga sénsa þegar hún gifti sig á dögunum en hún klæddist strigaskóm frá Nike. 

Brúðarskór Serenu Williams eru kannski óvenjulagir en afar fallegir.
Brúðarskór Serenu Williams eru kannski óvenjulagir en afar fallegir. skjáskot/Instagram

Williams sem er vön því að klæðast strigaskóm á tennisvellinum lét skreyta strigaskóna með kristölum. Skórnir voru vel faldir undir síðum Alexander McQueen-brúðarkjól Williams. Skórnir eru þó algjört augnayndi og fékk fólk að sjá það þegar hún fór í þá aftur á dansgólfi, þá klædd styttri kjól. 

Skórnir eru af tegundinni Nike Cortez, klassísk hönnun frá íþróttamerkinu. Það var Meraki Mishell sem sá um að gera strigaskóna brúðkaupshæfa.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál