Melania Trump kann að klæða sig við hæfi en forsetafrúin mætti í veislu til þess að horfa á Ofurskálina í nótt í 211 þúsund króna jakka. „Bomber-jakkinn“ er úr satíni og er frá merkinu Amiri.
Lið í amerískum fótbolta keppa um Ofurskálina og passaði jakkinn því fullkomlega við tækifærið enda sportlegur jakki sem hæfir hvaða klappstýru sem er. Hvort sem hún er heima við sjónvarpið eða úti á velli. Við jakkann klæddist forsetafrúin síðan hvítum þröngum buxum og hælum frá Christian Louboutin.
Hönnuðurinn Mike Amiri er vinsæll meðal stjarnanna en hann byrjaði ferilinn á því að selja stjörnum á borð við Mick Jagger föt úr kjallaranum hjá sér í Hollywood fyrir um fimm árum. Fyrirsætan Gigi Hadid er einnig sögð vera aðdáandi Amiri.