Söngkonan Beyoncé er þekkt fyrir fallegt hár sitt og eftirtektaverða hárstíla. Í fyrra skipti hún til að mynda út sléttujárninu fyrir vöfflujárn. Hárgreiðslumaðurinn Neal Farinah hefur greitt Beyoncé í 13 ár og er með á hreinu hvað sé málið í sumar.
Farinah er á sínu fimmta tónleikaferðalagi með söngkonunni og upplýsti í viðtali við Elle hvaða hágreiðslu þau Beyoncé væru helst að vinna með. Í ljós kemur að í sumar eru þau að vinna með helminginn af hárinu í tagl og hinn helminginn slegið. Ástæðan er einföld, það er sumar og það er heitt og hann vill ekki að hárið á söngkonunni klessist allt við andlitið á henni og feli andlit hennar.
Farinah segir hárgreiðsluna ekki bara henta Byeoncé heldur fari hún hreinlega öllum konum vel. Það eina sem konur þurfi að gera er að setja fallega eyrnalokka í eyrun og þá er það komið.
Ólíkt mörgum hárgreiðslumönnum stjarnanna segist Farinah ekki nota mikið af efnum í hár sönkonunnar. „Þeir nota of mikið af efnum,“ segir hann um aðra hárgreiðslumenn og segir hárið fá að vera frjálst og töfrandi á náttúrulegan hátt án efnanna.