Smartland vekur athygli á blómum og blúndum í sumar. Líkt og Stella McCartney boðaði í vor þá er kominn tími fyrir gamla brúðarkjólinn. Bikiní með blómum og ljósa kjóla með ljósum sokkabuxum.
Flestir eiga svona kjóla í fataskápnum. Eins er auðvelt að sauma blóm eða blúndu á það sem við eigum fyrir í fataskápnum.
Eftirfarandi hlutir eru fáanlegir um þessar mundir í anda rómantísku tískunnar sem Smartland leggur til að við skoðum í sumar. Eins eru tískumerki á borð við Stella McCartney að bjóða upp á rómatíska blúndukjóla næsta vetur. Þá er best að klæðast stórum mjúkum peysum og kasmír sokkabuxum við kjólana.