Þynnra hár og hækkandi kollvik er fylgifiskur þess að eldast. Á einhvern hátt virðist þetta ekki eiga við fræga karlmenn en David Beckham er einn af þeim sem skartar örþunnu hári á milli þess sem hann sést með þykkt hár.
Í byrjun september 2018 var Beckham myndaður við sundlaugarbakka í Miami með afar þunnt hár. Svo virtist sem aldurinn væri loksins að ná í skottið á honum og skallablettur að byrja að myndast. Nokkrum dögum seinna var kappinn mættur til Hong Kong með dökkt og þéttvaxið hár.
Beckham var á Íslandi í sumar en þegar litið er til baka þá var hann annaðhvort með húfu eða hatt á myndunum. Spurning hvort ástæðan hafi verið íslenska veðrið eða hárleysi?