Ef þú vilt fá örlítið nýtt yfirbragð og gera þig upp þá er nýr varalitur alltaf góður kostur. Ný varalitalína frá YSL breytir stemningunni.
Um er að ræða varalitalínuna Rouge Pur Couture THE SLIM. Um er að ræða hágæðavaraliti sem gefa mjúka og þægilega áferð sem þú varla finnur fyrir!
Mött leðuráferðin gerir þessa varaliti einstaka. Þeir gefa mikinn, hreinan lit, kremaða áferð og eru einstaklega auðveldir í notkun. Í litapallettunni eru 25 litir og því ætti hver einasta kona að geta fundið sinn lit í línunni.