Alveg síðan Weleda var stofnað árið 1921 hefur fyrirtækið framleitt náttúrulegar húð- og líkamsvörur sem byggjast á sömu heildarsýn og antrosopísk lyf. Vörurnar styðja við góða heilsu og hafa fyrirbyggjandi eiginleika. Í þær eru eingöngu notaðar lækningajurtir, náttúrulegar jurta- og ilmkjarnaolíur. Framleiðsluferlið byggist á hinu dulúðarfulla sambandi á milli þekkingar mannsins og náttúruaflanna.
Gentle Cleansing foam Er ljúfur andlitshreinsir sem hreinsar venjulega og blandaða húð. Þú færð hæfilegan skammt af vörunni í lófann og er mælt með að anda að sér ilmkjarnanum áður en varan er notuð á húðina. Himneskt í morgunsturtuna og síðan til að hreinsa andlitið eftir annasaman dag.
Refining Toner
Er milt og frískandi andlitsvatn fyrir allar húðgerðir. Andlitsvatnið lífgar upp á húðina og kemur jafnvægi á hana eftir hreinsun. Gott er að bera andlitsvatnið á bæði kvölds og morgna eftir að hafa notað hreinsifroðuna.
Eftir nokkurra vikna notkun á þessari vöru daglega sést ljómi í húðinni sem er kærkominn inn í veturinn.
elinros@mbl.is