Leikkonan Keira Knightley vakti mikla athygli þegar jólamyndin The Nutcracker and the Four Realms var frumsýnd í London. Knightley leikur plómudísina í myndinni sem er byggð á Hnotubrjótinum og var hún ævintýralega klædd á rauða dreglinum í takt við hlutverkið.
Stjörnurnar eru vanar að klæðast glænýrri hönnun en hvíti Chanel-kjóllinn með bleika mittislindanum sem Knightley klæddist var ekki glænýr. InStyle greinir frá því að kjóllinn hafi fyrst sést á tískusýningu Chanel árið 2005. Þrátt fyrir að hönnunin sé 13 ára gömul passaði hún fullkomlega á leikkonunni þetta kvöldið.
Meðleikkonur Knightley í myndinni þær Mackenzie Foy og Ellie Bamber voru einnig ævintýralega klæddar. Stjörnuballerínan Misty Copeland fer einnig með hlutverk í myndinni en hún skar sig úr í svörtum kjól á rauða dreglinum í London.