Kraftmeiri herrailmur í haust

Á haustin færum við okkur gjarnan yfir í dekkri liti og sterkari ilmvötn. Þessar árstíðarbreytingar eru sérlega áberandi í ár þegar kemur að herrailmvötnum en kraftmeiri og þéttari útgáfur af vinsælum herrailmvötnum ráða för á markaðnum nú. 

Chanel Bleu de Chanel Parfum

Einn allra besti herrailmur síðari ára er án efa Bleu de Chanel og nú kemur hann í parfum-útgáfu. Kraftmikill og fágaður ilmur sem býr þó yfir ferskleika sem blandast tónum sedrus- og sandalsviðar.

Chanel Bleu De Chanel Parfum.
Chanel Bleu De Chanel Parfum.
Úr auglýsingu fyrir Chanel Bleu de Chanel Parfum.
Úr auglýsingu fyrir Chanel Bleu de Chanel Parfum. mbl.is

Dolce & Gabbana The One Grey

Fersk krydd, gráir viðartónar og blæbrigði af tóbaki einkenna nýjustu útgáfu Dolce & Gabbana af The One. Game of Thrones-stjarnan Kit Harington er andlit ilmsins og verður að segjast að herferðin sé sérlega glæsileg.

Kit Harington er glæsilegur í auglýsingu Dolce & Gabbana fyrir …
Kit Harington er glæsilegur í auglýsingu Dolce & Gabbana fyrir The One Grey. mbl.is

Yves Saint Laurent Y Eau de Parfum

Tælandi og ilmandi túlkun Yves Saint Laurent af hinni auðkennandi samsetningu tískuhússins á hvítum bol og svörtum jakka. Djúpur, ferskur og kryddaður ilmur en upprunalegi ilmurinn var hannaður fyrir nýja kynslóð karlmanna sem eru skapandi og láta til sín taka.

Yves Saint Laurent Y Eau de Parfum.
Yves Saint Laurent Y Eau de Parfum. mbl.is
Adam Levine er andlit nýjasta herrailmvatns Yves Saint Laurent.
Adam Levine er andlit nýjasta herrailmvatns Yves Saint Laurent. mbl.is

Boss The Scent Private Accord

Hlýr, kryddaður og djúpur herrailmur með austrænu yfirbragði sem verður ávanabindandi. Glæsilegur ilmurinn einkennist af engiferi, mokka, kakóbaunum og viðartónum.

Boss The Scent Private Accord.
Boss The Scent Private Accord.
Jamie Dornan er andlits Boss The Scent Private Accord.
Jamie Dornan er andlits Boss The Scent Private Accord.




Prada Luna Rossa Black

Luna Rossa-herrailmurinn frá Prada hefur notið gífurlegra vinsælda en ilmurinn er innblásinn af Luna Rossa-siglingakeppninni sem Prada stendur fyrir. Luna Rossa Black kemur skiljanlega í kolsvörtu ilmglasi sem endurspeglar vel kryddaðan og djúpan ilminn.

Prada Luna Rossa Black.
Prada Luna Rossa Black.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál