Janúarmánuður er mánuðurinn sem fólk ætlar sér oft mikið, hitta vinina oftar, mæta í ræktina og byrja að vera vegan. Átak undir myllumerkinu Januhairy snýst þó akkúrat um hið gagnstæða eða að fjarlægja ekki líkamshár sín. Konur víða um heim hafa birt myndir af líkamshárum sínum á Instagram en oft er eins og ætlast sé til af samfélaginu að þau séu fjarlægð.
Hvort sem það eru hár undir höndunum, hár á fótum, maga eða í klofi leyfa konur þeim að njóta sín í janúar og líklega lengur. Rökin fyrir því að fjarlægja hárin ekki eru ekki bara að berjast gegn staðalímynd kvenna heldur losna konur einnig við óþarfa áhyggjur og vesen. Konur sem hætta að raka sig undir höndunum tala um að þær verði ekki jafnblautar undir höndunum og finni fyrir minni svitalykt þvert á það sem margir halda.
Hér má sjá konur fagna hárum sínum og segja sögur sínar.