Á vef The Zoe Report má lesa um allt á milli himins og jarðar þegar kemur að tískunni. Nýjasta spá þeirra um skartgripatískuna er í anda naumhyggjunnar. Ástfangin pör á árinu 2020, sem vilja festa ráð sitt og halda sig í tískunni, geta keypt fíngerða hringa úr eðalsteinum en ekki demöntum á árinu.
Tilfinningaleg gildi verða ofar þeim efnahagslegu ef marka má greinina enda á ástin að vera fyrir alla.
Fágaðir litlir skartgripir sem minna á miðjan áratug síðustu aldar, eru greinilega það sem koma skal í skartgripum á nýju ári. Það verður áhugavert að fylgjast með tískustraumum og hverjir munu fylgja þeim á nýja árinu.