„Mamma, er eitthvað sem þú átt ekki krem við?“

Dagmar Una Ólafsdóttir og Jón Starkaður.
Dagmar Una Ólafsdóttir og Jón Starkaður.

Dagmar Una Ólafsdóttir er að fara að ferma son sinn, Jón Starkarð, í vor og ætlar að nostra við húð sína og fjölskyldunnar fyrir fermingardaginn. Hún mælir með lífrænum vörum sem fermingarbörnin geta notað líka. Hún er sölu- og markaðsstjóri Dr. Hauschka á Íslandi og er menntaður jógakennari og reikiheilari. Hún hefur alltaf haft óbilandi áhuga á snyrtivörum og þá helst náttúrulegri og góðri húðrútínu.

Þessa dagana er hún að undirbúa fermingu eldri sonar síns, Jóns Starkaðar. Hún segir að mörgu að huga þegar kemur að því að halda fermingu. Enda sé fermingardagurinn stór dagur.

„Það er einnig mikið að gera í vinnunni en þessa dagana er Dr. Hauschka að koma með nýja línu sem heitir „Flower Power“ og er línan fyrir unga fólkið okkar.

Línan samanstendur af léttum og fljótandi dagvökvum, Balancing Day Lotion, fyrir blandaða til feita húð og „Soothing Day Lotion“ fyrir þurra og viðkvæma húð. Svo fylgir þessari línu „Revitalizing Day Lotion“ sem hefur verið á markaðnum í mörg ár. Við erum erum mjög spennt fyrir þessari línu.“

Fermist 1. apríl á skírdag

Fermingin verður haldin þann 1. apríl á skírdag. Jóni Starkaði fannst þetta skemmtileg dagsetning og telur Dagmar Una dagsetninguna góða til að muna. „Fermingarveislan verður haldin á Petersen-svítunnni og verða snittur, pinnamatur og falleg fermingarkaka. Salurinn verður svo skreyttur í fallegu þema sem hæfir deginum. Við ætlum að hafa daginn afslappaðan en það má ekki myndast stress í kringum daga sem þennan. Þessi dagur á fyrst og fremst að vera skemmtilegur og eftirminnilegur.“

Dagmar Una er þakklát fyrir að vera í lifandi og skemmtilegri vinnu. „Vinnan hentar mér sérstaklega vel þar sem húðumhirða hefur lengi verið áhugamál hjá mér. Ég hef alltaf hugsað vel um húð mína og eingöngu notað náttúruleg gæðakrem. Ég man eftir því að ég las grein um Madonnu þegar ég var 15 ára gömul en þar talaði hún um Rósakremið frá Dr. Hauschka. Þá fór ég og keypti mér fyrsta lífræna kremið mitt og þá var ekki aftur snúið.“

Mikilvægt að hreinsa húðina

Hvað ætlarðu að gera tengt húðinni fyrir ferminguna?

„Kvöldið fyrir fermingardaginn nota ég leirmaska. Hann nota ég til að hreinsa húðina sem best en síðan nota ég rakamaskann „Cream Mask“. Hann nærir vel húðina og gerir hana gljáandi fallega. Fermingarbörnin geta einnig notað vörur sem eru með engin skaðleg efni í sér.

Húðin er stærsta líffærið okkar og það sem þú setur á hana skilar sér margfalt til baka. Því er mikilvægt að vera meðvitaður um hreinar og vandaðar snyrtivörur.“

Hver er uppáhaldsrakinn þinn?

„Uppáhaldsrakinn minn er „Soothing“- maskinn frá Dr. Hauschka en ég blanda honum daglega í dagkremið „Rose Light“ sem er létt og gott rakakrem en maskinn gefur mér fallega áferð og ljóma út daginn. Mikilvægur partur í húðrútínunni er hreinsun. Til þess að húðin verði sem fallegust þá kemur hreinsimjólk og hreinsikrem sterkt inn. Mild hreinsun er góður grunnur fyrir hreint og heilbrigt útlit húðarinnar.

Það sem hefur komið mér einna mest á óvart er fitulausa húðumhirðan fyrir nóttina. Í stað þess að hindra eðlilega starfsemi húðarinnar með því að nota feit krem eftir hreinsun á kvöldin þá er húðin örvuð með andlitsvatni sem inniheldur styrkjandi og endurnýjandi kjarnaseyði úr jurtum, svo er gott að nota nærandi olíulaust næturserum sem hjálpar húðinni að anda og flýtir þannig fyrir endurnýjun hennar. Að nota fitulausa umhirðu fyrir nóttina eykur innra jafnvægi húðarinnar og örvar starfsemi hennar. Áhrifin koma fram í fögru, geislandi og heilbrigðu útliti. Til að viðhalda náttúrulegum, fallegum ljóma húðarinnar er nauðsynlegt að leyfa henni að anda á næturnar.“

Ef þú ætlar að hafa húð fermingardrengsins hreina og fallega á fermingardaginn, hvað gerir þú þá?

„Ég myndi ganga úr skugga um að hann að hann þrifi húð sína vel bæði kvölds og morgna og setti á sig gott rakakrem. Einnig er hægt að bæta við brúnkudropum fyrir frísklegri lit.“

Langar að gleðjast með sem flestum

Hvernig ætlið þið að vera klædd á fermingardaginn?

„Jón Starkaður er mínimalískur þegar kemur að klæðaburði. Á fermingardaginn valdi hann sér flotta skyrtu og bindi og verður í snyrtilegum buxum og hvítum flottum strigaskóm. Hann vildi miklu frekar dýra og flotta takkaskó fyrir fótboltann enda algjör fótboltagaur. Ég er ekki enn búin að velja mér mitt dress en það sem er á óskalistanum er kjóll frá Hildi Yeoman.“

Dagmar Una segir engan á heimilinu komast hjá því að hugsa um húðina. „Synir mínir segja oft: Mamma, er eitthvað sem þú átt ekki krem við?“

Jón Starkaður fermist í Fríkirkjunni og segir hann fermingarfræðsluna þar skemmtilega og lifandi.

„Við tölum um Jesú og trúna sem er okkur svo kær en ég og Jón Starkaður erum mjög náin og hann veit að hann getur alltaf leitað til mín með hvað sem. Svo erum við líka svo góðir vinir og tölum um allt milli himins og jarðar og erum bæði með svipaðan húmor og getum því hæglega komið hvort öðru til að hlæja. Mér þykir það ótrúlega dýrmætur tími að skipuleggja þennan dag með Jóni Starkaði og það mun skilja eftir fallegar minningar.“

Ætlið þið að bjóða mörgum í veisluna?

„Það fer eftir kórónuveirunni. Eins og staðan er í dag er fyrirhugað að hafa bara okkar nánustu; svo ég tel að það verði góðmennt en fámennt. Við leyfum okkur þó að dreyma um að tímabil kórónuveirunnar verði búið og við getum glaðst með sem flestum.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál