Fór í lýtaaðgerð og er óánægð

Ljósmynd/Unsplash

Þórdís Kjartansdóttir lýtalæknir á Dea Medica svarar spurningum lesenda Smartlands. Hér fær hún spurningu frá konu sem fór í lýtaaðgerð og er ekki ánægð. 

Sæl Þórdís.

Ég fór í lýtaaðgerð, lyftingu og púða. Eftir aðgerðina var ég mjög ósátt af því mér fannst lýtalæknirinn ekki taka nógu mikla húð. Ég fór til hans og hann sagðist ætla að laga þetta eftir nákvæmlega eitt ár þegar ég væri búin að jafna mig. Á þessu eina ári varð ég ófrísk og þó svo að ég sé aldrei jafn ósátt við brjóstin mín og eftir aðgerð en þau að vísu lagast orðið svolítið. Veistu hvort ég þurfi að fara í lyftingu aftur eða er nóg að taka þessa húð bara?

Bestu kveðjur H. 

Þórdís Kjartansdóttir lýtalæknir.
Þórdís Kjartansdóttir lýtalæknir. mbl.is/Árni Sæberg

Sæl og takk fyrir spurninguna.

Það hljómar eins og þú þurfir aftur lyftingu á brjóstunum. Brjóstin stækka alltaf á meðgöngu og brjóstagjöf og oft „of mikil húð“ sem situr eftir sérstaklega ef púðarnir voru settir bak við vöðva. Ég mæli alltaf með því bíða með aðgerð ef barneignir eru á „tveggja ára planinu“, en vissulega koma stundum óvæntir glaðningar. Ef umframhúðin er ekki mikil þá er stundum hægt að gera minni háttar aðgerð í staðdeyfingu.

Ég mæli með því að þú skoðir þína möguleika með þínum lýtalækni.

Með bestu kveðjum og gangi þér vel,

Þórdís Kjartansdóttir lýtalæknir.

Liggur þér eitthvað á hjarta? Þú getur sent Þórdísi spurningu HÉR. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál