Jenna Huld Eysteinsdóttir, húðsjúkdómalæknir hjá Húðlæknastöðinni, segir sólvarnir nauðsynlegar í sólinni í sumar.
Jenna Huld fær að jafnaði margar spurningar frá skjólstæðingum sínum sólvarnir. Landsmenn virðast vita mikið um sólina en sumar staðhæfingar eru á kreiki sem eru ekki vísindalega samþykktar.
Eitt af því sem Jennu Huld finnst mikilvægt að fólk viti er að sólvarnir eru góðar þó þær séu ekki fullkomnar. Það þýðir því lítið að smyrja á sig sólvörn og vera svo allan daginn í sólinni.
„Það á að nota sólvarnir sem viðbót við sólhlífar, klæðnað, sólhatt eða derhúfu. Margir trúa því að það sé óhætt að liggja í sólinni ef þeir bera á sig reglulega sólarvörn. Það er alls ekki rétt og mikilvægt að gæta hófs í sólinni eins og í svo mörgu öðru. Reynið að forðast sólina yfir miðjan daginn þegar hún er sem sterkust og verið í skugga. Mikilvægt er að smyrja sólarvörn á svæði sem þú getur ekki dulið með klæðnaði, eins og andlit og handarbök.“
Er sólvörn með hærri SPF betri sólvörn?
„Það er rétt að vissu leyti. Það er ekki svo mikill munur á SPF 30 og 50 sólarvörn ef hún er borin á í þykku lagi. Þá verndar sólarvörn með SPF 30 um 96-97% gegn geislum sólarinnar á meðan sólarvörn með SPF 50 verndar um 98%. Rannsóknir hafa aftur á móti sýnt að það er bara um fjórðungur sem notar þykkt lag eins og á að gera og að flestir smyrja allt of þunnt á sig. Þá er stór munur á því að bera á sig sólarvörn með SPF 30 eða SPF 50, þar sem 50 verndar mun betur. Ég mæli alltaf með notkun á sólarvörn með SPF 50 eða hærri, aldrei lægri en SPF 30.“
Er sólvörn krabbameinsvaldandi?
„Þetta hefur verið hvimleið mýta undanfarin ár og skapað hræðslu og vantrú hjá fólki. Það eru engar vísindalegar rannsóknir sem hafa sýnt fram á að innihaldsefnin í sólarvörnum séu krabbameinsvaldandi. Vísindalegar rannsóknir hafa aftur á móti sýnt fram á ótvíræð tengsl á milli sólarnotkunar og húðkrabbameina, það er að því meiri sólarnotkun því meiri hætta á húðkrabbameini á lífsleiðinni.“
Eins hefur borið á þeirri staðhæfingu að húðin geti ekki framleitt D-vítamín ef þú notar sólvarnir. Er það rétt?
„Það er satt en mikilvægt er að hafa í huga að þú þarft alls ekki langan tíma í sólinni til að fá nægjanlegt D-vítamín yfir daginn. Rannsóknir hafa sýnt að 15 mínútur á dag án sólarvarnar eru nægjanlegar fyrir D-vítamínframleiðslu. Nú í dag vitum við að sólin er ekki bara krabbameinsvaldandi heldur einnig ein af meginorsökum ótímabærrar öldrunar húðarinnar. Það er því mikilvægt að gæta hófs í nærveru sólarinnar til að viðhalda heilbrigði húðarinnar.“