Hjónin Emmanuel og Brigitte Macron voru í stíl þegar þau fögnuði sigri Emmanuel Macrons í frönsku forsetakosningunum á sunnudaginn. Frú Macron er þekkt fyrir að klæðast drögtum og franskri hönnun og hún olli ekki aðdáendum sínum vonbrigðum í gær frekar en fyrri daginn.
Á meðan forsetinn klæddist dökkbláum jakkafötum var forsetafrúin hans í dökkblárri buxnadragt í stíl. Macron er þekkt fyrir ást sína á franska tískumerkinu Louis Vuitton og var buxnadragtin sem hún klæddist á sunnudaginn að sjálfsögðu frá Louis Vuitton að því fram kemur á vef Vogue.
Það er ekkert gamaldags eða hefðbundið við buxnadragtina hennar Brigitte Macron. Silfurlitaður áberandi kragi og tölur í sama stíl gerðu dragtarjakkann sérstaklega flottan.
Þegar Emmanuel Macron varð forseti fyrir fimm árum vakti nýja forsetafrúin athygli fyrir flottan stíl. Frakkar munu áfram eiga eina best klæddu forsetafrú heims næstu fimm árin eftir sigurinn á sunnudaginn.