Stærstu stjörnurnar í Balenciaga

Stjörnurnar Kim Kardashian, Nicole Kidman, Dua Lipa og Christine Quinn …
Stjörnurnar Kim Kardashian, Nicole Kidman, Dua Lipa og Christine Quinn gengu tískupallinn í París. Samsett mynd

Hinn 6. júlí síðastliðinn frumsýndi tískuhúsið Balenciaga 51. Couture Collection á París hátísku vikunni (e. haute couture week), en á tískupallinum sáust þónokkur fræg andlit.

Í byrjun sýningarinnar gengu fyrirsætur huldar svörtum andlitshlífum út á tískupallinn, en eftir það var komið að fræga fólkinu. Á meðal gesta á fremsta bekk sýningarinnar voru þau Kris Jenner, North West, Keith Urban, Offset og Tracee Ellis Ross sem fylgdust spennt með.

Langþráður draumur Kim Kardashian rættist í gær þegar hún gekk sína fyrstu tískusýningu í París. Athafnakonan hefur verið í samstarfi við tískuhúsið og hefur sést klædd sem „Balenciaga-Barbí“ síðustu mánuði. 

Leikkonan Nicole Kidman klæddist silfruðum kjól, en hún kom gestum sýningarinnar skemmtilega á óvart. 

Söngkonan Dua Lipa gladdi gesti í gulum kjól. 

Raunveruleikastjarnan og fasteignasalinn Christine Quinn lék frumraun sína á tískupallinum á sýningu Balenciaga. Quinn skaust hratt upp á stjörnuhimininn í raunveruleikaþáttunum Selling Sunset.

Fyrirsætan Bella Hadid lét sig ekki vanta, en hún klæddist grænum kjól á sýningunni. 

Að sjálfsögðu var tískugoðsögnin Naomi Campell á pallinum, en hún klæddist svörtum kjól sem var heldur betur stórglæsilegur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál