Skoraði fjögur mörk gegn meisturunum

Guðný Árnadóttir úr Val og Sveindís Jane Jónsdóttir, sem skoraði …
Guðný Árnadóttir úr Val og Sveindís Jane Jónsdóttir, sem skoraði fjögur mörk fyrir Keflavík. Ljósmynd/Hari

Keflavík vann óvæntan 4:2-sigur á Val á Bose-móti kvenna í fótbolta í Reykjaneshöllinni í gærkvöldi. Jafntefli hefði dugað Íslandsmeisturum Vals til að vinna mótið, en Sveindís Jane Jónsdóttir skoraði fjögur mörk fyrir Keflavík í leiknum. 

FH og KR mætast í lokaleik mótsins á laugardag og getur annað liðið með algjörum stórsigri tryggt sér sigurinn á mótinu. Annars verður Valsliðið sigurvegari mótsins, þrátt fyrir tapið í gær.

Staðan í hálfleik var 1:0, Keflavík í vil, en Sveindís Jane skoraði eina mark leiksins. Hún var heldur betur ekki hætt því hún bætti við þremur í seinni hálfleik. Fanndís Friðriksdóttir skoraði bæði mörk Vals, það síðara úr vítaspyrnu á lokamínútunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert