Í kjölfar stefnumótunar og umfangsmikillar greiningar á markaðsstarfi KSÍ, sem meðal annars var studd af UEFA í gegnum GROW verkefnið, ákvað KSÍ að endurmarka vörumerkjaauðkenni sín og tvískipta ásýnd KSÍ. Þannig munu auðkenni KSÍ verða tvö í grunninn til í stað eins áður – annars vegar merki Knattspyrnusambandsins og hins vegar merki landsliðanna. Þetta er hugsað til aðgreiningar þar sem markhópar þessara tveggja auðkenna eru oft ólíkir.

Nýtt merki Knattspyrnusambandsins kemur nú fram í fyrsta skipti á ýmsum gögnum sem birt eru í tengslum við ársþing KSÍ, sem fram fer í Ólafsvík 22. febrúar næstkomandi. Nýtt merki landsliðanna verður kynnt sérstaklega á vormánuðum.

Um nýtt merki KSÍ:

Uppfært merki KSÍ dregur fram hreyfinguna og kraftinn sem býr í knattspyrnunni með þéttum formum og gegnumgangandi skálínum. Merkið er í íslensku fánalitunum þar sem rauð komman er um leið kyndill íslenskrar knattspyrnu. Með skýrari fókus og stílhreinni útfærslu getur merkið nú aðlagað sig betur að fjölbreyttum snertiflötum KSÍ og staðið sterkar á velli í allri stafrænni notkun sem verður æ fyrirferðarmeiri.