Dæmir bikarúrslitaleikinn

Ívar Orri Kristjánsson dæmir bikarúrslitaleikinn,
Ívar Orri Kristjánsson dæmir bikarúrslitaleikinn, Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Ívar Orri Kristjánsson mun dæma úrslitaleik bikarkeppni karla í knattspyrnu, Mjólkurbikarsins, þar sem FH og Víkingur úr Reykjavík mætast.

Leikurinn fer fram á Laugardalsvelli og hefst klukkan 16 á morgun en þetta er í fyrsta sinn sem Ívar Orri dæmir bikarúrslitaleik í karlaflokki.

Dómarinn, sem er 34 ára gamall, hefur verið á meðal fremstu dómara landsins undanfarin ár og hann dæmdi meðal annars í riðlakeppni Sambandsdeildar UEFA á dögunum.

Ívari til aðstoðar verða þeir Birkir Sigurðsson og Egill Guðvarður Guðlaugsson og þá verður Vilhjálmur Alvar Þórarinsson fjórði dómari á leiknum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert