Tveir lykilmenn áfram í Úlfarsárdal

Hér berjast Jannik Pohl og Steinþór Már Auðunsson um boltann …
Hér berjast Jannik Pohl og Steinþór Már Auðunsson um boltann í leik Fram og KA í sumar. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Erlendu knattspyrnumennirnir Jannik Pohl og Delphin Tshiembe hafa framlengt samning sinn við Fram, Pohl um tvö ár og Tshiembe um ár. 

Báðir leikmenn voru mikilvægir í liði Fram á síðasta tímabili og sérstaklega undir lok þess. Pohl skoraði níu mörk í 21 leik og Tshiembe á 23 leiki fyrir félagið og skoraði laglegt mark í sumar. 

Formaður knattspyrnudeildar Fram, Agnar Þór Hilmarsson, segir í tilkynningu á Facebook-síðu félagsins:

„Báðir leikmenn yxu gríðarlega vel þegar leið á tímabilið. Jannik er kominn á fullt skrið eftir meiðslahrjáð tímabil síðasta vetur og þrátt fyrir góðan seinni hluta þá á hann enn mikið inni. Delphin kemur með mikla reynslu og mun vonanda vaxa enn frekar.“ 

Delphin Tshiembe í baráttunni við Arnar Breki Gunnarsson í leik …
Delphin Tshiembe í baráttunni við Arnar Breki Gunnarsson í leik Fram og ÍBV í sumar. mbl.is/Óttar Geirsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert