Fyrirliði Víkings í Val

Nadía Atladóttir er gengin til liðs við Íslandsmeistara Vals.
Nadía Atladóttir er gengin til liðs við Íslandsmeistara Vals. mbl.is/Eggert Johannesson

Nadía Atladóttir, fyrrverandi fyrirliði ríkjandi bikarmeistara Víkings úr Reykjavík í knattspyrnu, er gengin til liðs við Íslandsmeistara Vals.

Tilkynnt var um skiptin rétt í þessu fyrir leik karlaliðs Vals og ÍA í fyrstu umferð Bestu deildarinnar sem hefst klukkan 19.15.

Þar gekk Nadía inn á völlinn í Valstreyju en ekki kom fram hversu langan samning hún skrifaði undir.

Nadía og Víkingur komust óvænt að samkomulagi í vikunni um að rifta samningi hennar og er mikið ósætti meðal stuðningsmanna Víkings með riftunina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert