Vujin verður ekki með

Marko Vujin
Marko Vujin imago sportfotodienst

Stórskyttan Marko Vujin verður ekki með Serbíu gegn Íslandi vegna meiðsla. Honum var í dag skipt út úr leikmannahópi Serba á EM. 

Vujin er örvhent skytta og hefur leikið lengi undir stjórn Alfreðs Gíslasonar hjá Kiel. Hann var með Serbum í fyrsta leiknum gegn Króötum en varð þar fyrir meiðslum á fæti og lék ekki gegn Svíum. 

Í hans stað er kallaður inn í hópinn Nikola Crnoglavac sem leikur með Dobrogea Constanta í Rúmeníu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert