Verðskuldum að fara á Wembley

Kevin De Bruyne fagnar sigurmarki sínu í kvöld.
Kevin De Bruyne fagnar sigurmarki sínu í kvöld. AFP

„Við spiluðum góðan leik og erum ánægðir,“ sagði Kevin de Bruyne, miðjumaðurinn frábæri í liði City, sem innsiglaði sigur sinna manna gegn Bristol City í síðari viðureign liðanna í enska deildabikarnum í knattspyrnu í kvöld.

„Við gáfum þeim engin tækifæri og við hefðum átt að vinna leikinn þrjú eða fjögur núll. Við vissum að það yrði mögnuð stemning á meðal stuðningsmanna Bristol en við náðum að halda okkur rólegum. Eftir að við við vorum komnir í 2:0 beittu þeir löngum sendingum og náðu að skora tvö mörk en við verðskuldum að vera komnir á Wembley.

Ég missti af úrslitaleiknum þegar við spiluðum síðast vegna meiðsla en við skulum vona að úrslitin verði þau sömu,“ sagði De Bruyne en City mætir sigurvegaranum í leik Arsenal og Chelsea sem eigast við á morgun. Fyrri leiknum á Stamford Bridge lyktaði með markalausu jafntefli.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert