Fulham nældi í tvo frá Spáni

Luciano Vietto er orðinn leikmaður Fulham.
Luciano Vietto er orðinn leikmaður Fulham. Ljósmynd/Fulham

Argentínski fótboltamaðurinn Luciano Vietto mun leika með Fulham á komandi leiktíð, en hann kemur til félagsins að láni frá Atletico Madrid. Vietto hefur spilað 25 leiki fyrir Atletico og skoraði í þeim eitt mark. 

Hann hefur undanfarin tvö árið verið að láni hjá Sevilla og Valencia á Spáni, en nú mun hann leika á Englandi í fyrsta skipti. Vietto er 24 ára miðjumaður og á hann landsleiki fyrir yngri landslið Argentínu. 

Sergio Rico hefur einnig gengið í raðir Fulham, en hann er 24 ára markmaður. Hann kemur til félagsins frá Sevilla þar sem hann hefur spilað 170 leiki og unnið Evrópudeildina tvisvar, en einnig er um lánssamning að ræða. 

Sergio Rico
Sergio Rico Ljósmynd/Fulham
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert