Fabinho maður leiksins - Einkunnir úr Liverpool og City

Fabinho fagnar marki sínu.
Fabinho fagnar marki sínu. AFP

Brasilíumaðurinn Fabinho, miðjumaður Liverpool, var valur maður leiksins hjá Sky Sports og BBC í viðureign Liverpool og Englandsmeistara Manchester City á Anfield í kvöld.

Liverpool hrósaði 3:1 sigri og náði með honum átta stiga forskoti í toppsæti deildarinnar. Liverpool hefur 34 stig, Leicester og Chelsea 26 og Manchester City er í fjórða sætinu með 25 stig.

Fabinho skoraði fyrsta mark leiksins á 6. mínútu með þrumuskoti af um 25 metra færi en Brasilíumaðurinn var frábær í liði Liverpool.

Einkunnir Sky Sports:

Liverpool: Alisson (8), Alexander-Arnold (8), Van Dijk (8), Lovren (7), Robertson (8), Fabinho (9), Wijnaldum (7), Henderson (8), Salah (8), Firmino (7), Mané (8).

Man City: Bravo (5), Walker (5), Stones (4), Fernandinho (5), Angelino (5), Rodri (5), Gundogan (5), Sterling (6), Bernardo Silva (6), De Bruyne (6), Agüero (5).

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert