Bið á því að áhorfendur verði leyfðir

AFP

Ekkert verður úr þeim fyrirætlunum að leyfa áhorfendur á íþróttaviðburðum á Englandi á nýjan leik hinn 1. október. 

Viðbúnaðarstigið vegna kórónuveirunnar hefur verið hækkað á ný á Bretlandseyjum. 

Ekki hefur verið sett ný dagsetning en heldur hefur málið verið sett á ís í bili samkvæmt fréttum BBC. 

Þeir íþróttaviðburðir sem fram hafa farið á Englandi síðan í mars hafa farið fram án áhorfenda. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert