Varnarmaður Chelsea á förum

Fikayo Tomori í sínum eina leik með enska landsliðinu.
Fikayo Tomori í sínum eina leik með enska landsliðinu. AFP

Knatt­spyrnumaður­inn Fikayo Tomori er við það að ganga til liðs við AC Milan á Ítalíu en um er að ræða lánssamning út þetta tímabil og getur ítalska stórliðið svo keypt hann í sumar.

Tomori braut sér leið inn í aðallið Chelsea á síðustu leiktíð og spilaði 15 deildarleiki en hann hefur aðeins komið einu sinni við sögu í ensku úrvalsdeildinni á yfirstandandi leiktíð. Samkvæmt Sky Sports mun þessi 23 ára varnarmaður fara til AC Milan að láni og getur félagið svo keypt hann á 25 milljónir punda í sumar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert