Gylfi mætir toppliðinu í bikarnum

Gylfi Þór Sigurðsson og félagar mæta Manchester City í átta …
Gylfi Þór Sigurðsson og félagar mæta Manchester City í átta liða úrslitum. AFP

Dregið var í átta liða úrslit enska bikarsins í fótbolta í kvöld. Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Everton mæta toppliði ensku úrvalsdeildarinnar, Manchester City, á heimavelli.

Leikir átta liða úrslitanna fara fram 20. og 21. mars. Gylfi átti stóran þátt í að Everton tryggði sér sæti í átta liða úrslitunum er hann lagði upp þrjú mörk og skoraði eitt í 5:4-sigri á Tottenham í gær. 

Manchester United mætir Leicester á útivelli og Chelsea eða Barnley fær Sheffield United í heimsókn. Þá mætast Bournemouth og Southampton í suðurstrandarslag. 

Leikur Barnsley og Chelsea er lokaleikur 16-liða úrslitanna en hann var flautaður á klukkan 20. 

Átta liða úrslit enska bikarsins: 
Everton - Manchester City
Bournemouth - Southampton 
Leicester - Manchester United
Barnsley eða Chelsea - Sheffield United

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert