Tvær tvennur í stórsigri Liverpool (myndskeið)

Diogo Jota og Darwin Núnez skoruðu tvö mörk hvor er Liverpool vann öruggan 4:0-útisigur á Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

Eftir markalausan fyrri hálfleik hrökk Liverpool-liðið í gang í seinni hálfleik og skoraði hvert markið á fætur öðru.

Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan, en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert