Hraunaði yfir Klopp

Jürgen Klopp var pirraður í leikslok.
Jürgen Klopp var pirraður í leikslok. AFP/Paul Ellis

Enski sjónvarpsmaðurinn Piers Morgan var ekki hrifinn af hegðun Jürgen Klopps, knattspyrnustjóra Liverpool, eftir 3:4-tapið gegn Manchester United á útivelli í enska bikarnum í gærkvöldi.

Manchester United skoraði sigurmark leiksins á lokasekúndunum í framlengingunni og var Klopp í vondu skapi eftir leik. Lét hann m.a. danskan sjónvarpsmann heyra það í viðtali, þegar sá þýski var ósáttur við spurningu.

„Klopp er virðingalaus og tapsár vitleysingur,“ skrifaði Morgan á X-síðu sinni í gær. Morgan, sem er gríðarlega umdeildur, er mikill stuðningsmaður Arsenal.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert