Leikmaður Liverpool dregur sig úr hópnum

Darwin Núnez er að glíma við meiðsli.
Darwin Núnez er að glíma við meiðsli. AFP/Oli Scarff

Framherjinn Darwin Núnez verður ekki með úrúgvæska landsliðinu í tveimur vináttuleikjum sem fram undan eru vegna meiðsla sem hann varð fyrir í tapi Liverpool gegn Manchester United, 4:3, í átta liða úrslitum enska bikarsins í fótbolta í gærkvöldi.

Núnez fann til aftan í læri eftir leikinn og er ekki klár í slaginn fyrir vináttuleiki Úrúgvæ gegn úrvalsliði Baskalands og Fílabeinsströndinni.  

Sóknarmaðurinn lék allar 120 mínúturnar á Old Trafford í gær, en hann hefur mikið glímt við meiðsli í læri á tímabilinu.

Núnez hefur skorað 17 mörk í öllum keppnum með Liverpool á leiktíðinni og lagt upp 12 til viðbótar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert