Arteta: Frábær spurning en ég ætla ekki að svara henni

Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal.
Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal. AFP/Glyn Kirk

Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, var léttur í lundi á blaðamannafundi fyrir leik liðsins gegn Bayern München í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í Lundúnum annað kvöld. 

Fyrri leikur liðanna fer fram í Lundúnum á morgun en sá síðari fer fram í München þann 16. apríl. 

Bayern er í miklu veseni heima fyrir en liðið er í öðru sæti með 16 stigum minna en topplið Bayer Leverkusen. 

Spurður hvort hann hafi rætt við Xabi Alonso, stjóra Leverkusen, fyrir leikinn sagði Arteta einfaldlega:

„Frábær spurning en ég ætla ekki að svara henni.“ 

Arteta og Alonso ólust saman upp hjá Real Sociedad í San Sebastian á Spáni og eru góðir félagar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert