„Ég sagði ykkur að hann myndi gráta“

Rodrigo Muniz skoraði fjög­ur mörk í fjór­um leikj­um ásamt því …
Rodrigo Muniz skoraði fjög­ur mörk í fjór­um leikj­um ásamt því að leggja upp eitt mark til viðbót­ar. AFP/Henry Nicholls

Bras­il­íski knatt­spyrnumaður­inn Rodrigo Mun­iz, táraðist þegar að Andreas Pereira og Willian Borges, liðsfélagar hans í Fulham afhentu honum verðlaun en hann var leikmaður mars­mánaðar í ensku úr­vals­deild­inni.

Rodrigo hélt að hann væri að fara í viðtal til að tala um leik Fulham gegn West Ham á sunnudaginn en liðsfélagar hans komu honum á óvart í miðju viðtali.

„Ég er að fara að gráta,“ sagði hrærður Rodrigo og þurrkaði tárin en Willian þekkir liðsfélaga sinn vel og sagðist hafa spáð því að hann færi að gráta.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert