Matreiðslubók byggð á Halo væntanleg

Halo-matreiðslubók er væntanleg í ágúst.
Halo-matreiðslubók er væntanleg í ágúst. Skjáskot/Amazon

Tölvuleikjaserían Halo heldur áfram að breiða úr sér í raunheimum en sérstök matreiðslubók byggð Halo-heiminum verður gefin út í ágúst.

343 Industries tilkynntu um sérstaka matreiðslubók með tísti, matreiðslubókina Halo: The Official Cookbook, sem mun innihalda yfir 70 uppskriftir.

Ekki fyrst sinnar tegundar

Bókin er skrifuð af Victoriu Rosenthal en hún hefur áður gefið út matreiðslubækur byggðar á tölvuleikjum. Hún hefur meðal annars gefið út matreiðslubækur byggðar á Final Fantasy XIV, Street Fighter, Fallout og Destiny.

Hægt er að skoða vinnu hennar nánar hér, þar sem hún blandar saman tölvuleikjum og matreiðslu með því að elda mat sem hún finnur í gegnum tölvuleiki.

Halo-matreiðslubókina er hægt að forpanta nú þegar en eins og fyrr var getið, verður hún ekki gefin út fyrr en í ágúst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert