Valorant-deildir á Íslandi af stað á ný

Valorant á Íslandi.
Valorant á Íslandi. Grafík/Rafíþróttasamtök Íslands

Þriðja tímabil Valorant-deildanna á Íslandi hefst bráðlega og geta áhugasamir skráð sig til leiks fram að 5. janúar.

Úrvalsdeildin fer af stað þann 7. janúar og stendur yfir til 4. febrúar en neðri deildir frá 8. janúar til 12. febrúar.

Þeir sem hafa hug á að taka þátt í neðri deildum geta skráð sig til leiks með því að fylgja þessum hlekk en til boða stendur að skrá sig sem einstaklingur, tvíeyki eða fullskipað lið. Skráningarfresturinn er til klukkan 23.00 fimmtudaginn 5. janúar.

Nánar um fyrirkomulag deildanna má lesa hér á heimasíðu Rafíþróttasamtaka Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert