Firmino slapp við refsingu

Roberto Firmino
Roberto Firmino AFP

Enska knattspyrnusambandið hefur staðfest að Roberto Firmino, sóknarmanni Liverpool, verður ekki refsað fyrir orðskipti sín við Mason Holgate, varnarmann Everton er liðin mættust í enska bikarnum í janúar.

Leikmennirnir hnakkrifust eftir átök og sakaði Holgate Brasilíumanninn um rasisma. Ekki þóttu næg sönnunargögn gegn Firmino til að úrskurða hann um bann. Þrátt fyrir þessa ákvörðun hrósaði sambandið Holgate eftir atvikið og bætti við að öllum slíkum ásökunum verður tekið alvarlega í framtíðinni. 

Firmino hefur verið sjóðheitur að undanförnu og hefði verið mikið áfall fyrir Liverpool að missa hann í bann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert