Sara byrjar gegn vængbrotnu Þór/KA

Pernille Harder skorar sigurmark fyrri leiksins.
Pernille Harder skorar sigurmark fyrri leiksins. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Sara Björk Gunnarsdóttir er á sínum stað í byrjunarliði þýska liðsins Wolfsburg er Þór/KA kemur í heimsókn á AOK-völlinn í síðari leik liðanna í 32-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta. Leikurinn hefst kl. 16 og er Wolfsburg með 1:0-forystu frá fyrri leiknum. 

Lið Þór/KA er vængbrotið þar sem þrír af bestu leikmönnum liðsins eru í verkefni með mexíkóska landsliðinu. Stephany Mayor, Bianca Sierra og Ariana Calderón eru allar fjarri góðu gamni. 

Þór/KA er aðeins með þrjá leikmenn á varamannabekknum og þar af varamarkmanninn Johanna Henriksson. 

Þór/KA: (5-4-1) Mark: Stephanie Bukovec. Vörn: Hulda Björg Hannesdóttir, Arna Sif Ásgrímsdóttir, Lillý Rut Hlynsdóttir, Lára Einarsdóttir, Ágústa Kristinsdóttir. Miðja: Margrét Árnadóttir, Andrea Mist Pálsdóttir, Anna Rakel Pétursdóttir, Sandra María Jessen. Sókn: Hulda Ósk Jónsdóttir. 

Varamenn: Johanna Henriksson (M), Rut Matthíasdóttir, Karen María Sigurgeirsdóttir. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert