Hannes fær ekki tækifæri á Emirates

Hannes Þór á milli stanganna með íslenska landsliðinu gegn Belgum …
Hannes Þór á milli stanganna með íslenska landsliðinu gegn Belgum í Þjóðadeildinni. AFP

Landsliðsmarkvörðurinn Hannes Þór Halldórsson fær ekki að láta ljós sitt skína á Emirates-leikvanginum í Lundúnum í kvöld þegar Arsenal tekur á móti Qarabag í lokaumferð riðlakeppni Evrópudeildarinnar.

Hannes Þór er ekki í leikmannahópi Qarabag í kvöld en þrír markverðir liðsins hafa skipt nokk­urn veg­inn með sér leikj­un­um hjá Qara­bag á leiktíðinni.

Arsenal er þegar búið að vinna riðilinn. Liðið er með 13 stig eftir fimm leiki en Qara­bag er í botnsætinu með 3 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert