Bjarki Steinn og Helgi æfa með Start

Bjarki Steinn Bjarkason
Bjarki Steinn Bjarkason mbl.is/Kristinn Magnússon

Knattspyrnumennirnir Bjarki Steinn Bjarkason og Helgi Guðjónsson eru mættir til Noregs þar sem þeir æfa með Start sem leikur í B-deildinni. Jóhannes Harðarson er þjálfari liðsins og Aron Sigurðarson leikmaður þess. 

Bjarki Steinn skoraði þrjú mörk í 20 leikjum með ÍA í úrvalsdeildinni í sumar á meðan Helgi skoraði fimmtán mörk með Fram í 1. deildinni og var markahæstur ásamt Pétri Theodóri Árnasyni. Í kjölfarið samdi Helgi við Víking Reykjavík. 

„Þetta snýst um að byggja upp samband á milli félaga á Íslandi. Við getum unnið betur með þeim. Það er áhugaverður markaður á Íslandi sem við ættum að fylgjast betur með,“ sagði Jóhannes Harðarson á heimasíðu Start. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert