Argentínska goðsögnin Diego Maradona tilkynnti í fyrradag að hann væri hættur þjálfun hjá hjá argentínska félaginu Gimnasia.
Svo virðist vera að Maradona hafi nú snúist hugur því spænska blaðið AS greinir frá því að Maradona hafi boðað komu sína á æfingu með liðinu á morgun.
Maradona tók við liðinu í byrjun september og hefur gengi liðsins undir hans stjórn ekki verið gott. Gimnasia er í 22. sæti af 24 liðum í argentínsku deildinni.