Iniesta í umræðunni

Andrés Iniesta.
Andrés Iniesta. AFP

Andrés Iniesta, einn af sigursælustu knattspyrnumönnum sögunnar, er áberandi um þessar mundir. 

Gerð hefur verið heimildamynd um kappann eins og áður hefur verið minnt á hér á mbl.is. Henni er ritstýrt af Oriol Bosch og mun vera aðgengileg hjá Rakuten TV samkvæmt heimasíðu Barcelona. 

En ekki er þar látið staðar numið því ævisaga kappans er einnig komin út og er rituð af Carlos Ruiz Zafón. Er hún gerð með samþykki Iniesta sem er sagður nota bókina til að tjá sig um eitt og annað. 

Iniesta varð bæði heims- og Evrópumeistari með Spáni og sigraði fjórum sinnum í Meistaradeild Evrópu með Barcelona. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert