Magnað mark og Tottenham fyrst í sextán liða úrslit

Dele Alli skorar stórbrotið mark með hjólhestaspyrnu á 10. mínútu …
Dele Alli skorar stórbrotið mark með hjólhestaspyrnu á 10. mínútu leiksins í kvöld. AFP

Tottenham varð í dag fyrsta liðið til að tryggja sér sæti í sextán liða úrslitum Evrópudeildarinnar í fótbolta með því að vinna öruggan sigur á Wolfsberger frá Austurríki í London, 4:0.

Tottenham var í góðum málum þegar flautað var til leiks eftir að hafa unnið fyrri leikinn í Austurríki, 4:1.

Dele Alli gaf tóninn með stórglæsilegu marki sem hann skoraði með hjólhestaspyrnu á 10. mínútu. Staðan var 1:0 í hálfleik.

Alli lagði síðan upp mörk fyrir Carlos Vinicius og Gareth Bale á 50. og 73. mínútu og Vinicius skoraði sitt annað mark og innsiglaði sigurinn á 83. mínútu, 4:0.

Samanlagt vann því Tottenham einvígi liðanna 8:1.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert