Alfons og félagar fóru létt með Færeyingana

Guðmundur Andri Tryggvason og Alfons Sampsted í leik Vals og …
Guðmundur Andri Tryggvason og Alfons Sampsted í leik Vals og Bodö/Glimt á Hlíðarenda síðasta sumar. mbl.is/Árni Sæberg

Nígeríumaðurinn Victor Boniface skoraði öll þrjú mörkin er Alfons Sampsted og félagar í Bodö/Glimt fóru létt með færeysku meistaranna KÍ frá Klaksvík í fyrstu umferð Meistaradeildar karla í knattspyrnu í Noregi en leiknum var að ljúka rétt í þessu. 

Alfons spilaði allan leikinn í þessum 3:0 sigri. Næst leika liðin í Klaksvík í Færeyjum þriðjudaginn 12. júlí og ljóst er að það verður mikil brekka fyrir færeysku meistaranna að koma sér aftur í einvígið. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert