„Besti leikmaður sem fótboltinn hefur alið af sér“

Sergio Ramos og Lionel Messi eru góðir félagar í dag.
Sergio Ramos og Lionel Messi eru góðir félagar í dag. AFP/Mahmoud Hefnawy

Sergio Ramos, miðvörður Frakklandsmeistara Parísar SG, segist afar glaður með að fá að vera liðsfélagi argentínska snillingsins Lionel Messi um þessar mundir eftir fjölda ára þar sem þeir voru keppinautar.

Ramos og Messi elduðu grátt silfur saman um langt árabil þegar Ramos lék með Real Madríd og Messi með Barcelona. Þeir eru nú liðsfélagar hjá PSG.

„Ég þurfti að þjást í mörg ár er ég spilaði gegn Messi. Nú nýt ég hans. Hann er besti leikmaður sem fótboltinn hefur alið af sér,“ sagði Ramos í samtali við PSG TV.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert