Öruggur sigur KA-manna

KA-menn fagna.
KA-menn fagna. mbl.is/Golli

KA vann öruggan sigur á Þrótti frá Neskaupstað, 3:0, þegar liðin áttust við í Mizuno-deild karla í blaki í gærkvöldi.

Þróttarar héldu vel í við KA menn í upphafi fyrstu hrinu en í stöðunni 13:11 fyrir KA skoruðu þeir 6 stig í röð. Hrinunni lauk með 25:17 sigri KA. Þróttarar leiddu aðra hrinuna allt fram undir hana miðja en þá vöknuðu KA menn til lífsins. Hrinunni lauk með 25:20 sigri KA-manna og þeir því komnir í væna stöðu.

Þriðja hrina var jöfn þar til í stöðunni 6:6 en þá tóku KA-menn á rás og Þróttarar sáu aldrei til sólar eftir það. KA vann hrinuna 25:11 og leikinn því 3:0. Stigahæsti leikmaður KA var Alexander Arnar Þórisson með 18 stig og hjá Þrótti var Atli Fannar Pétursson stigahæstur með 7 stig.

KA er á toppnum með 22 stig, HK hefur 18 stig, Stjarnan 15, Þróttur Neskaupstað 8 og Afturelding 6.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert