Larry Nassar stunginn í fangelsinu

Larry Nassar mun sitja í fangelsi til dauðadags.
Larry Nassar mun sitja í fangelsi til dauðadags. AFP

Larry Nassar, fyrrverandi læknir bandaríska fimleikalandsliðsins, var stunginn margsinnis með eggvopni í Colman-fangelsinu í Flórída í gær.

Nassar var sakfelldur fyrir að brjóta kynferðislega á fjölda landsliðsstúlkna og kvenna í landsliðinu á meðan hann var læknir þess. 

AP-fréttaveitan greinir frá og segir tvo heimildarmenn sína segja atvikið hafa gerst í gær en að ástand Nassar sé stöðugt. 

Er hann sagður hafa verið stunginn í bakið og bringuna. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert