Birgir Leifur fer vel af stað

Birgir Leifur Hafþórsson leikur á Spáni í dag.
Birgir Leifur Hafþórsson leikur á Spáni í dag.

Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson hefur í morgun lokið leik á þremur brautum af átján á öðrum hring Opna spænska meistaramótsins í golfi. Það sem er af er hefur hann leikið á einu höggi undir pari.

Birgir Leifur hóf leik á 10. braut og lék hana á pari. Því næst fékk hann fugl á 11. og lék síðan þá tólftu á pari. 

Birgir Leifur lék vel framan af á fyrstu degi mótsins í gær og var á pari eftir níu holur. Á þeim níu síðari féll honum allur ketill í eld og var á fimm höggum yfir pari. Það er því á brattann að sækja hjá Birgir Leifi í dag en fækkað verður í hópi keppenda eftir daginn í dag. 

Mótið fer fram í Madríd. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert