Valdís leikur með Spánverja og Svía

Valdís Þóra Jónsdóttir
Valdís Þóra Jónsdóttir mbl.is/Hari

Valdís Þóra Jónsdóttir úr Leyni tekur þátt í lokamóti Evrópumótaraðarinnar í golfi sem hefst á Spáni á morgun. Hún fer á teig í hádeginu að staðartíma. 

Valdís á teig klukkan 12:45 að spænskum tíma og er í ráshópi með Silvíu Banon frá Spáni og Línu Boqvist frá Svíþjóð. 

Heildarverðlaunafé í mótinu er 300 þúsund evrur og því til mikils að vinna fyrir þá kylfinga sem komast í gegnum niðurskurð keppenda. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert